Foss lögmenn | fjármál
Foss lögmenn ǀ fjármál veita einstaklingum, fyrirtækjum og stofnunum alhliða þjónustu á sviðum lögfræði og fjármála. Stofan er þannig í stakk búin til að veita heildstæða og þverfaglega ráðgjöf við úrlausn mála fyrir viðskiptavini.
Foss lögmenn hafa fjölþætta reynslu af lögmannsstörfum og lögfræðilegri ráðgjöf. Lögð er áhersla á að veita fyrsta flokks þjónustu á flestum sviðum lögfræðinnar.
Foss fjármál býr yfir yfirgripsmikilli reynslu af fjárfestingum, fjárhagslegri endurskipulagningu og ráðgjöf við innlend og erlend fyrirtæki.
Helstu sérsvið
Starfsmenn stofunnar búa yfir áralangri reynslu á hinum ýmsu sérsviðum lögfræðinnar.
Okkar sérþekking liggur þó einna helst í eftirfarandi málaflokkum:
Innheimta og gjaldþrotaréttur
Innheimta og gjaldþrotaréttur
Foss lögmenn ǀ fjármál veita sérhæfða ráðgjöf til einstaklinga og fyrirtækja í tengslum við innheimtu, skuldaskil og greiðsluerfiðleika. Tekur stofan að sér að semja við lánardrottna og leita leiða til að koma á varanlegri lausn á þeim vanda sem er til staðar. Ráðgjöf á þessu sviði tekur til greiðslustöðvunar, nauðasamninga og gjaldþrotaskipta, samningagerðar, kröfulýsinga, uppgjörs viðskipta, innheimtu og fullnustugerða, meðferðar ágreiningsmála og annarra þátta sem reynt getur á.
Fjármála- og félagaréttur
Fjármála- og félagaréttur
Foss lögmenn ǀ fjármál veita alhliða ráðgjöf á sviði fjármála- og félagaréttar til einstaklinga og fyrirtækja. Tekur þjónustan meðal annars til ráðgjafar í tengslum við bankastarfsemi, verðbréfaviðskipti, val á félagaformi, fjármögnun og gerð hluthafasamninga, breytinga á rekstrarformi, samruna, yfirtökur og fleira.
Foss lögmenn ǀ fjármál hafa yfir að ráða áratugareynslu af störfum sem innanhúslögmenn og sérfræðingar í eignaumsýslu og fyrirtækjaráðgjöf hjá bönkum og fjármálafyrirtækjum. Þá hafa starfsmenn stofunnar setið í stjórnum fyrirtækja, bæði innlendra og erlendra.
Sakamál
Sakamál
Foss lögmenn taka að sér verjandastörf í hvers konar sakamálum auk þess sem þeir annast réttargæslu fyrir þolendur afbrota. Þeir sem sakaðir eru um refsiverða háttsemi eiga alltaf rétt á aðstoð verjanda, bæði fyrir lögreglu sem og dómstólum. Þá geta brotaþolar átt rétt á aðstoð réttargæslumanns, einkum í þeim tilvikum þar sem reynir á rétt til skaðabóta.
Foss lögmenn búa yfir mikilli sérþekkingu á sakamálum og refsirétti og hafa starfsmenn stofunnar annast kennslu á sviði sakamálaréttarfars við lagadeild Háskólans í Reykjavík allt frá árinu 2015.
Fyrirtækjaráðgjöf og fjárhagsleg endurskipulagning

Foss lögmenn ǀ fjármál búa yfir mikilli þekkingu á sviði fyrirtækjaráðgjafar. Veitir stofan víðtæka þjónustu svo sem rekstrarráðgjöf, aðstoð við fjármögnun, fjárhagslega endurskipulagningu, kaup og sölu fyrirtækja, samruna og yfirtökur. Jafnframt veitir stofan aðstoð við gerð hvers kyns samninga.
Rekstrarráðgjöf og fjármögnun
Rekstrarráðgjöf og fjármögnun
Foss fjármál veita stjórnendum fyrirtækja hvers konar rekstrarráðgjöf, svo sem almenna greiningu á rekstri, aðstoð við úrlausn vandamála og greiningu á tækifærum. Þá veita starfsmenn Foss fjármála almenna ráðgjöf við fjármögnun fyrirtækja, fjárfestinga og einstakra verkefna, þ. á m. greiningu á valkostum við öflun lánsfjár og hlutafjár.
Hagsmunagæsla og mannréttindi
Hagsmunagæsla og mannréttindi
Foss lögmenn veita einstaklingum, hagsmunafélögum og fyrirtækjum ráðgjöf um hvers konar álitaefni sem tengjast þeirri mannréttindavernd sem lögum, stjórnarskrá og alþjóðasáttmálum er ætlað að tryggja.
Fjölskyldu- og erfðaréttur
Fjölskyldu- og erfðaréttur
Foss lögmenn veita margvíslega þjónustu á sviði fjölskyldu- og erfðaréttar svo sem við gerð kaupmála, fjárslit við skilnað eða sambúðarslit, forræðis- og umgengnisdeilur, gerð erfðaskráa, skipti á dánarbúum, lögræðismál og fleira.
Fasteigna- og skipulagsmál
Fasteigna- og skipulagsmál
Foss lögmenn ǀ fjármál veita ráðgjöf í tengslum við kaup og sölu fasteigna og við úrlausn ágreinings, svo sem vegna vanefnda eða gallamála. Þá hafa starfsmenn stofunnar víðtæka reynslu af rekstri fasteignafélaga, endurskipulagningu fasteignafélaga sem og kaupum og sölum á slíkum félögum. Stofan er jafnframt til ráðgjafar um fjöleignarhúsa- og leigurétt sem og hvers kyns skipulagsmál.
Kaup og sala fyrirtækja
Kaup og sala fyrirtækja
Foss lögmenn | fjármál veita stjórnendum fyrirtækja heildstæða ráðgjöf í tengslum við kaup, sölu og sameiningu fyrirtækja, þ. á m. með aðstoð við greiningu á fjárfestingakostum. Foss lögmenn | fjármál koma jafnframt að gerð áreiðanleikakannana, mati á fjármögnunarkostum, skjalagerð sem og umsjón við uppgjör viðskipta.
Málflutningur og úrlausn ágreiningsmála
Málflutningur og úrlausn ágreiningsmála
Foss lögmenn veita alhliða þjónustu við úrlausn ágreiningsmála. Slík þjónusta nær til sáttamiðlunar sem og úrlausna fyrir gerðardómum, stjórnvöldum eða almennum dómstólum.

Starfsfólk
- +354 537 5111
- ragnar@fosslogmenn.is
Ragnar Björgvinsson
Lögmaður | Eigandi
Lögmaður | Eigandi
Starfsferill:
2019 - | Foss lögmenn | fjármál (eigandi) |
2014 - 2019 | Yfirlögfræðingur Glitnir HoldCo ehf. |
2009 - 2014 | Lögmaður Glitnir HoldCo ehf. (áður Glitnir banki hf.) |
2008 - 2009 | Skattstjórinn í Reykjavík, lögfræði- og úrskurðadeild |
Menntun:
2010 | M.L. í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík |
2005 | Stúdentspróf frá Verzlunarskóla Íslands |
Réttindi:
2020 | Málflutningsréttindi fyrir Landsrétti |
2010 | Málflutningsréttindi fyrir héraðsdómstólum |
Félags- og trúnaðarstörf:
2013 - 2018 | Stjórnarmaður í Lyfju hf. Ýmis trúnaðarstörf fyrir félagasamtök |
- +354 537 5111
- karolina@fosslogmenn.is
Karólína Finnbjörnsdóttir

2022 - | Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála (aðalmaður) |
2017 - 2019 | Mandat lögmannsstofa slf. / LMB Mandat slf. |
2015 - 2017 | Endurupptökunefnd, við úrlausn beiðna um endurupptöku á Guðmundar- og Geirfinnsmáli |
2010 - 2015 | Embætti sérstaks saksóknara |
2007 - 2009 | Héraðsdómur Reykjavíkur, sumarstarf |

2019 | Málflutningsréttindi fyrir héraðsdómstólum |
Kennsla:
2015 - | Umsjónarkennari námskeiðsins Sókn og vörn í sakamálum við lagadeild Háskólans í Reykjavík |
2018 - 2019 | Umsjónarkennari námskeiðsins Sakamálaréttarfar við lagadeild Háskólans í Reykjavík |
Félags- og trúnaðarstörf:
2020 - | Í stjórn Garðheima gróðurvara ehf. |
2018 - 2020 | Varamaður í stjórn Íslenskra verðbréfa hf. |
2013 - 2016 | Stjórnarmaður í Ákærendafélagi Íslands |
2008 - 2015 | Stjórnarmaður í Bókaútgáfunni Codex. Formaður stjórnar 2013-2015 |
Ritstörf:
2012 | Grein í Tímariti Lögréttu: „Tálbeitur - Greiningaraðferð við mat á lögmæti“. Árg. 8, nr. 3 (2012) |
- +354 537 5111
- snorri@fossfjarmal.is
Snorri Arnar Viðarsson
Viðskiptafræðingur | Eigandi
Viðskiptafræðingur | Eigandi
Starfsferill:
2019 - | Foss fjármál ehf. (eigandi) |
2008 - 2018 | Glitnir Holdco ehf. (forstöðumaður í eignaúrvinnslu) |
2004 - 2008 | Íslandsbanki hf. (lánastjóri) |
2001 - 2002 | Lánasjóður íslenskra námsmanna (innheimtustjóri) |
1999 - 2000 | Ingvar Helgason hf. (gjaldkeri) |
Menntun:
2004 | Viðskiptaháskólinn í Árósum, Cand. Merc. Finansiering (M.Sc. í fjármálum og alþjóðaviðskiptum) |
2001 | Háskóli Íslands, B.Sc. í viðskiptafræði |
Félags- og trúnaðarstörf:
2015 - | Stjórnarmaður í Genís hf. - íslenskt líftæknifyrirtæki |
2015 - 2017 | Stjórnarmaður í Knattspyrnudeild Breiðabliks |
2014 - 2017 | Stjórnarmaður í Stoðum hf. - íslenskt fjárfestingafyrirtæki. |
2015 - 2017 | Stjórnarmaður í City Center Properties AS - norskt fasteignafyrirtæki |
2015 - 2016 | Stjórnarmaður í Nopco Paper Technology AS - norskt efnafyrirtæki |
2013 - 2016 | Stjórnarmaður í Nýr Norðurturn hf. - íslenskt fasteignafyrirtæki |
2013 - 2015 | Stjórnarmaður í Holistic House Ørestad - danskt fasteignafyrirtæki |
2012 - 2014 | Stjórnarmaður í Lyfju hf. |

- erna@fosslogmenn.is
Erna Hlíf Jónsdóttir
Starfsferill:
2021 - | Foss lögmenn | fjármál – Fjármálaráðgjafi |
2019 – 2021 | Sýn hf. – Deildarstjóri Hagdeildar |
2016 – 2018 | Valitor hf. – Sérfræðingur, áætlun- og rekstrargreining |
2015 – 2016 | Arion banki hf. - Sérfræðingur, fyrirtækjaráðgjöf |
2010 – 2014 | Glitnir Holdco ehf. – Lánastjóri í sérlánateymi |
2006 - 2010 | Íslandsbanki hf. – Fyrirtækjaráðgjöf og einkabankaþjónusta |
Menntun:
2009 | Háskólinn í Reykjavík, Mestarapróf í fjárfestingarstjórnun (MSIM) |
2007 | Löggilding í verðbréfamiðlun |
2006 | Háskólinn í Reykjavík, B.Sc. í viðskiptafræði |
Félags- og trúnaðarstörf:
2014 - 2015 | Stjórnarmaður Lyfja hf. |
2012 – 2015 | Varamaður í stjórn Sjóvá-Almennar tryggingar hf |